Undirsíður
Efnisleit
Sláðu inn leitarorð

 
Opnunartími skrifstofu Þingeyjarsveitar:

Mánud. – fimmtud. kl. 10°° til 15°°

Föstud. kl. 10°° til 12°°

Sími: 464-3322  Fax: 464-3422

 

Umsóknareyðublöð

http://www.vegahandbokin.is

http://www.visitnortheasticeland.is

http://www.nordausturland.is

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

Á döfinni
SMÞMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
3456789
September 2010
Spurningin

Hvað á að gera í sumarfríinu?

Ferðast um Ísland.
33 atkvæði, 48,5%
Fara til útlanda.
9 atkvæði, 13,2%
Vera heima í afslöppun.
4 atkvæði, 5,9%
Fer ekki í sumarfrí.
21 atkvæði, 30,9%

Alls hafa 68 tekið þátt.

Í fréttum
Fundargerðir
3. mars 2003 15:03

Nýtt byggingarsvæði á Laugum

Nú hefur verið auglýst deiliskipulag fyrir nýja íbúðagötu á Laugum.

Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, m.s.br. er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi þónustu- og íbúðarbyggðar sunnan Kjarna.

 

Í tillögunni felst tillaga að byggingarreit fyrir viðbyggingu við Laugasel ásamt 2 þjónustulóðum.  Tvö núverandi íbúðarhús, Hólabraut og Hólabrekka, eru innan deiliskipulagsreitsins og eru lóðir þeirra nánar afmarkaðar í deiliskipulaginu.  Sunnan við einbýlishúsið Hólabraut er gert ráð fyrir íbúðarhúsagötu samhliða þjóðvegi nr. 1, með 4 lóðum fyrir parhús og einbýlishús á einni hæð neðan við götuna.  Ofan við götuna er gert ráð fyrir 5 lóðum fyrir einbýlishús, parhús eða fjórbýlishús á 2 hæðum. 

Á milli nýju íbúðabyggðarinnar og þjóðvegarins er gert ráð fyrir hljóðmön.  Skipulagið tekur mið af hraðadempandi tillögum á þjóðvegi nr. 1 með hringtorgum þar sem ekið er inn í byggðarkjarnann og nánari umferðarstýringu inn á þjóðveg nr. 1 í gegnum byggðakjarnann.

Skipulagssvæðið er u.þ.b. 4 ha að stærð.

 

Skipulagsuppdráttur ásamt greinargerð verða til sýnis á skrifstofu sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar frá 5. mars  2003 til 2. apríl  2003.

 

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera

athugasemdir við tillöguna. Skriflegum athguasemdum eða ábendingum skal skila á sveitarstjórnarskrifstofur Þingeyjarsveitar í Kjarna fyrir 16. apríl 2003.   Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni.

 

Sveitarstjórinn í Þingeyjarsveit


Til baka



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit